Rólegur Kúreki 歌詞
Rólegur kúreki - BRÍET
Lyrics by:Bríet Ísis Elfar/Pálmi Ragnar Ásgeirsson
Composed by:Bríet Ísis Elfar/Pálmi Ragnar Ásgeirsson
Blind
Blinduð af þér ég
Málaði upp mynd
Sem ég er sátt með
En þú labbar um með skammbyssu
Og dregur hana úr slíðrinu
Og miðar henni á alla í kring
Með höndina á sylgjunni
Og sveifluna á lykkjunni
En ég lít alltaf undan af því
Brosið og bláu augun dáleiða um leið
Eitt augnaráð og ég er háð þér
En rólegur kúreki
Komdu niður af háa hestinum
Hvernig væri að líta inn á við
Þú ert ekki einn í heiminum
Hættu að skjóta mig niður
Þú ert ekki james dean því miður
Rólegur kúreki
Rólegur kúreki
Týnd
Fæ engin viðbrögð
Þegar ég syng
Um þig ástarlög
Með stráið þitt í munninum
Og stóran hatt á höfðinu
Þú starir bara áfram veginn
Og gleymir þér í sjálfhverfu
Og neitar svo að horfa upp
Á stjörnubjartan himininn
Brosið og bláu augun dáleiða um leið
Eitt augnaráð og ég er háð þér
En rólegur kúreki
Komdu niður af háa hestinum
Hvernig væri að líta inn á við
Þú ert ekki einn í heiminum
Hættu að skjóta mig niður
Þú ert ekki james dean því miður
Rólegur kúreki
Rólegur kúreki
Rólegur kúreki
Rólegur kúreki
Hættu að skjóta mig niður
Þú ert ekki james dean því miður
Rólegur kúreki
Rólegur kúreki