Listen to Járnkarlinn song with lyrics from Eiríkur Fjalar

Járnkarlinn

Eiríkur Fjalar, Bjartmar Guðlaugsson1 Jan 1997

Járnkarlinn Lyrics

Járnkarlinn - Eiríkur Fjalar

Lyrics by:Bjartmar Guðlaugsson

Composed by:Bjartmar Guðlaugsson

Ég þekkti eitt sinn drengstaula sem fölur var og fár

Með reytt og úfið hár svo skyndibitablár

Ég sá oft þennan strákaula hann gugginn var og grár

Hann vældi þó að aldrei kæmu tár

Hann vildi aldrei borða neitt sem kraftinn gefið gat

Hann bara sat og sat og gaf í fæðu frat

En mamma hans og pabbi pældu allar leiðir út

En dýrið setti upp vandlætingarstút

Þá vítamín amma honum kraftinn allan gaf

Hún dældi honum ofan í hann þegar hann svaf

Stafrófinu af vítamínum fékk hún í hann blekkt

Með smurolíukönnu og stórri trekt

Hann er eins og klettur það heyrist doj oj oj oj oj

Þegar hann dettur þá heyrist doj oj oj oj oj

Hann heitir Árni og segir doj oj oj oj oj

Hann er úr járni því heyrist doj-oj-oj-oj-oj

Og amma hans með blindu auga bissnessljósið sá

Gull á fingri og tá sú gamla fór að spá

Að markaðssetja gemlinginn til gróða yrði gott

Og Íslands besta landkynningarplott

Nú æðir hann um heimsbyggðina í hasarfullum leik

Umbinn amma er hvergi smeyk hann lemur alla í steik

Sem andlit okkar út á við hann talar skýrt og hátt

Hann gæti leikið He-man voða grátt

Já vítamín amma honum hormónana gaf

Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf

Stafrófinu af bætiefnum fékk hún í hann blekkt

Með smurolíukönnu og stórri trekt

Hann er eins og uxi það heyrist doj oj oj oj oj

Þegar hann er hugsi þá heyrist doj oj oj oj oj

Hann heitir Árni og segir doj oj oj oj oj

Hann er úr járni því heyrist doj oj oj oj oj

En vítamín amma honum bætiefnin gaf

Hún dældi þeim ofan í hann þegar hann svaf

Með bílhlössum af próteinfæðu fékk hún í hann blekkt

Með fægiskóflu og risastórri trekt

Hann er eins og klettur það heyrist doj oj oj oj oj

Þegar hann dettur þá heyrist doj oj oj oj oj

Hann heitir Árni og segir doj oj oj oj oj

Hann er úr járni því heyrist doj-oj-oj-oj-oj

Doj-oj-oj-oj-oj

Popular Songs